Báturinn
NÚMI er 50 tonna eikarbátur, smíðaður í Stykkishólmi, sem hefur
verið breytt fyrir hvalaskoðun og sjóstangaveiði. Hann uppfyllir
ströngustu öryggiskröfur og er útbúinn með þægindi farþega okkar í
huga. NÚMI er happafley sem hefur reynst eigendum sínum vel. NÚMI
hefur leyfi fyrir 45 manns.
Það er mikil upplifun að sigla með NÚMA og njóta náttúrunnar í
nálægð við sjóinn.
Yfir 30 ára reynsla
Skipstjórinn og eigandinn, Örn Stefánsson, hefur verið sjómaður í
yfir 30 ár, bæði á smábátum og stærstu togurum landsins. Hann ólst
upp í sjávarþorpi á Austfjörðum, byrjaði snemma á sjónum og hefur
verið skipstjóri á fiskiskipum um allt Norður-Atlantshaf, frá
Barentshafi til Nýfundnalands. Þeir sem vilja geta litið við í
brúnni og heilsað upp á skipstjórann. Sjósigling er
fjölskyldufyrirtæki.