English

Hvalaskoðun

Margt ber fyrir augu á leiðinni frá Reykjavíkurhöfn út á Faxaflóa. Gaman er að fylgjast með fuglunum sem fylgja bátnum eftir. Ferðinni er heitið á hvalaslóðir og oftar en ekki sjáum við hvali í leit að æti. Engar tvær ferðir eru eins, því maður veit aldrei hvað náttúran býður upp á hverju sinni.

Á heimleiðinni eldar vélstjórinn, sem jafnframt er góður kokkur, ljúffenga súpu fyrir farþegana. Ferðin tekur þrjá til þrjá og hálfan tíma og er kjörið tækifæri til að slaka á og njóta íslenskrar náttúru.

Innifalið:  Sjávarréttasúpa og heit smábrauð, sem við njótum á leiðinni í land.

Tilvalið fyrir vinahópa og starfsmannafélög.

Verð

Hvalaskoðun
Fullorðnir 7.000
Börn 7 til 15 ára* 3.000
Börn yngri en 7 ára* FRÍTT

Lengd 3-3,5 klst.
Brottfarir daglega, ef veður leyfir

*Börn í fylgd með fullorðnum

**Vinsamlegast bókið með fyrirvara

Sækjum á hótel á Reykjavíkursvæðinu

Fullorðnir 1.000 krónur / Börn 500 krónur

Munið að koma hlýlega klædd, ef á þarf að halda eru sjóstakkar og buxur um borð.