Margt ber fyrir augu á leiðinni frá Reykjavíkurhöfn út á
Faxaflóa. Gaman er að fylgjast með fuglunum sem fylgja bátnum
eftir. Ferðinni er heitið á hvalaslóðir og oftar en ekki sjáum við
hvali í leit að æti. Engar tvær ferðir eru eins, því maður veit
aldrei hvað náttúran býður upp á hverju sinni.
Á heimleiðinni eldar vélstjórinn, sem jafnframt er góður kokkur,
ljúffenga súpu fyrir farþegana. Ferðin tekur þrjá til þrjá og
hálfan tíma og er kjörið tækifæri til að slaka á og njóta
íslenskrar náttúru.
Munið að koma hlýlega klædd, ef á þarf að halda eru
sjóstakkar og buxur um borð.